Gröfuþjónusta á höfuðborgarsvæðinu

Öflug lausn í jarðvinnu.

Gröfuvinna, veituframkvæmdir, lagnaskurðir og grunnvinna. Fyrir einstaklinga, húsfélög og verktaka.

5+ ára reynslaí faginu
Skýrt verðtilboð eða tímavinna, ákveðið fyrir fram
Lítil verk og stórfrá heimtaug að stærri framkvæmdum
Þjónusta

Það sem við gerum

Við tökum að okkur afmarkaða verkþætti eða sjáum um jarðvinnuna í heild sinni, í samstarfi við aðalverktaka, hönnuði og veitufyrirtæki.

Gröftur og jarðvinna

Uppgröftur, jarðvegsskipti og fyllingar, þjappaðar í lögum svo undirstaðan haldi.

  • Uppgröftur
  • Jarðvegsskipti
  • Fyllingar
Nánar um gröftur og jarðvinna

Veituframkvæmdir

Gröftur fyrir heimtaugar og lagnir að vatni, fráveitu, hitaveitu, rafmagni og ljósleiðara.

  • Vatn
  • Fráveita
  • Hitaveita
  • Strengir
Nánar um veituframkvæmdir

Lagnaskurðir

Skurðir að réttri dýpt og halla, með söndun og frágangi yfir lögnum.

  • Heimtaugar
  • Tengingar
  • Frágangur
Nánar um lagnaskurðir

Drenlögn kringum hús

Gröftur niður að sökkli fyrir nýja eða endurnýjaða drenlögn, og mokað aftur að.

  • Dren
  • Sökklar
  • Kjallarar
Nánar um drenlögn kringum hús

Grunnar og lóðir

Gröftur fyrir sökkla og grunna, undirstöður palla, heita potta og jöfnun lóða.

  • Sökklar
  • Undirstöður
  • Lóðajöfnun
Nánar um grunnar og lóðir

Ekki viss um hvað þarf?

Lýstu verkinu fyrir okkur og við förum yfir hvaða leið hentar best. Við tökum líka að okkur verkstjórn og undirverktöku.

Hafa samband
Verðreiknivél

Áætlaðu kostnaðinn

Veldu verkið, settu inn umfangið og fáðu verðhugmynd strax. Þetta er áætlun en ekki bindandi tilboð. Endanlegt verð fer eftir aðstæðum á staðnum.

01Hvað þarf að gera? Veldu eitt eða fleiri

02Umfang verksins

Veldu verk hér að ofan til að setja inn umfang.

03Aðstæður á staðnum

Jarðvegur
Aðgengi fyrir gröfu
Efni í verkið
Uppgrafinn jarðvegur
Hvernig er þetta reiknað?

Reiknivélin áætlar hve langan tíma gröfa og gröfumaður þurfa í verkið út frá rúmmáli og afköstum smágröfu, og leggur við flutning á tækjum, efni og akstur vörubíls.

Afköstin byggja á almennum viðmiðum fyrir 3 tonna gröfu: skófla tekur um 0,06–0,09 m³, ein umferð tekur 12–18 sekúndur og raunnýting er um 45–50 mínútur á klukkustund. Við lagnaskurði er gert ráð fyrir um 5–6 m³ á klukkustund í venjulegum jarðvegi, og hægar þegar unnið er þétt upp við hús.

Jarðvegur og aðgengi breyta afköstunum. Leir og grjót hægja á verkinu og þröngt aðgengi kallar á fleiri tilfærslur á vélinni.

Efni er reiknað í tonnum út frá rúmmáli: sandur undir lagnir og hellur, burðarlag í fyllingar og drenmöl við drenlagnir. Verð á efni miðast við verðskrá P. Blöndal og listaverð Steypustöðvarinnar. Hver ferð vörubíls tekur allt að 15 tonnum af efni eða 10 m³ af uppgreftri.

Verðhugmyndin er sýnd sem bil frá 90% upp í 130% af útreiknuðu verði, því aðstæður eru aldrei alveg eins og á blaði. Förgunargjöld á losunarstað, lagnaefni og hellur eru ekki innifalin.

Verkferli

Svona gengur þetta fyrir sig

Einfalt ferli og skýr samskipti frá fyrsta símtali. Þú veist alltaf hvar verkið stendur.

  1. Fyrirspurn

    Þú hringir eða sendir línu með staðsetningu og stuttri lýsingu.

  2. Skoðun

    Við skoðum aðstæður, aðkomu og umfang verksins.

  3. Tilboð

    Þú færð skýrt verð, fast tilboð eða tímavinnu.

  4. Framkvæmd

    Verkið unnið á umsömdum tíma og skilað snyrtilegu.

Um okkur

Reynsla úr verki

Íslenskt verktakafyrirtæki í jarðvinnu og gröfuþjónustu þar sem áreiðanleiki, gæði og skilvirk framkvæmd eru í fyrirrúmi.

5+ára reynsla

Reynsla

Hagnýt þekking af vinnusvæðinu sem skilar sér í réttum ákvörðunum.

Áreiðanleiki

Við mætum á réttum tíma og látum vita strax ef eitthvað breytist.

Gæði

Rétt dýpt, réttur halli og vandaður frágangur.

Skilvirkni

Gott skipulag heldur kostnaði niðri og verkinu á áætlun.

Hafa samband

Ræðum næsta verk

Hringdu, sendu póst eða fylltu út formið. Við svörum með verði eða símtali.

Sími773-3363
Netfangpetur@pblondal.is
StarfssvæðiHöfuðborgarsvæðið
Kennitala570125-0950
Hvað þarf að gera?
Fylla þarf út alla reiti. Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara fyrirspurninni.
Hringja 773-3363 Verðreiknivél