Drenlögn kringum hús.
Drenlögn leiðir vatn frá sökklinum og hjálpar til við að halda kjallaranum þurrum. Við grefum niður að sökkli, gerum rými fyrir lögnina og mokum aftur að þegar hún er komin.
Hvað við gerum
- Gröftur meðfram sökkli niður að undirstöðu
- Unnið varlega upp við húsið
- Rými fyrir drenrör, drenmöl og dúk
- Mokað aftur að húsinu og jafnað
- Samvinna við pípulagningamann ef þess þarf
Hvað hefur áhrif á verðið
- Ummál hússins
- Dýpt niður að sökkli
- Pallar, tröppur eða hellur sem fjarlægja þarf fyrst
- Aðgengi að húsinu
- Jarðvegur á staðnum
Notaðu verðreiknivélina til að fá verðhugmynd strax. Endanlegt verð er staðfest eftir skoðun.
Svona gengur þetta fyrir sig
Einfalt ferli og skýr samskipti frá fyrsta símtali.
Fyrirspurn
Þú hringir eða sendir línu með staðsetningu og stuttri lýsingu.
Skoðun
Við skoðum aðstæður, aðkomu og umfang verksins.
Tilboð
Þú færð skýrt verð, annaðhvort fast tilboð eða tímagjald.
Framkvæmd
Verkið er unnið á umsömdum tíma og svæðinu skilað snyrtilegu.
Algengar spurningar
Hvenær þarf að skipta um dren?
Algeng merki eru raki eða leki í kjallara, eða pollar sem standa við húsið eftir rigningu. Eldri drenlagnir geta stíflast eða gefið sig með árunum. Pípulagningamaður getur myndað lögnina til að meta ástand hennar.
Er drenefnið innifalið í verðinu?
Nei. Verðhugmyndin í reiknivélinni miðar við gröft og að moka aftur að. Drenrör, drenmöl og dúkur bætast við.
Hvað verður um hellur og palla við húsið?
Það sem er fyrir þarf að fjarlægja áður en grafið er. Láttu okkur vita hvað er við húsið og við tökum það með í áætlunina.